Jóga nidra - djúpslökun mánudaga og miðvikudaga

Jóga nidra - djúpslökun mánudaga og miðvikudaga

Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Directions

Mon 17.08.2026 17:15

Finnur þú fyrir streitu, spennu eða þreytu?

Áttu erfitt með að slaka á, sofna eða gefa þér tíma til að hvíla?

Þá gæti Yoga Nidra verið nákvæmlega það sem þú þarft.

Yoga Nidra, oft kölluð „jógískur svefn“, er djúp slökunaraðferð þar sem líkaminn fær tækifæri til að hvíla sig á meðan vitundin helst vakandi. Með leiðsögn í öruggu og nærandi rými fær taugakerfið tækifæri til að róast, spennur að mýkjast og hugurinn að kyrrast.

Á þessu námskeiði munum við:

Læra að slaka djúpt á og róa taugakerfið

Auka líkamsvitund og innri tengingu

Vinna með streitu og spennu á mildan hátt

Styðja við sjálfsmildi og innri frið

Styðja við betri svefn og endurheimt

Þú þarft enga fyrri reynslu af jóga eða hugleiðslu.

Allt sem þú þarft að gera er að mæta eins og þú ert, leggjast niður og leyfa þér að taka á móti.

Yoga Nidra býður okkur að staldra við í heimi sem hvetur stöðugt til meiri hraða og afkasta. Hún minnir okkur á að stundum felst dýpsta lækningin ekki í því að gera meira – heldur í því að leyfa sér að vera.

Dasetning: 17/8 - 09/09 = Mánud og mið vikudagar

8 vikur 2 x í viku eða 1x í viku

Tími: 17:15

Staðsetning:

Yogahúsið Lífsgæðaetur st.jó 4 hæð

Skráning: yogahusid@gmail.com

Verð: 22.800 kr

Gefðu þér leyfi til að hvíla.

Gefðu þér leyfi til að anda.

Gefðu þér leyfi til að koma heim til þín.