Líkamsvitund og innri skynjun - máttur Vagus taugar
Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions
Tue 25.08.2026 20:00
Margir með ADHD upplifa aukna streitu, innri óróleika, erfiðleika með tilfinningastjórnun og áskoranir við að hlusta á boð líkamans. En hvernig tengjast líkami, taugakerfi og vellíðan?
Á þessum fræðslufundi fjallar Sigrún Haraldsdóttir um mikilvægi líkamsvitundar og innri skynjunar og hvernig Vagus-taugin gegnir lykilhlutverki í samskiptum líkama og huga.
Vagus-taugin/Flökkutaugin er oft kölluð “drottning” parasympatíska kerfisins – bremsa líkamans. Hún er oft séð sem “umferðarstjórnandi”, þar sem hún er mikilvæg samskiptabraut milli líkamans og heilans og vinnur við að stýra öndun, hjartslætti, vöðvum, meltingu, koki, raddböndum og hæfileika okkar til að upplifa, vinna úr og fá botn í reynslu okkar.
Fræðslufundurinn hentar fólki með ADHD, aðstandendum og fagfólki sem vill dýpka skilning sinn á tengslum taugakerfis, líkamsvitundar og geðrænnar vellíðanar.
Fræðslufundurinn verður í streymi fyrir félagsfólk ADHD samtakanna á facebook síðunni ADHD í beinni.
Þú getur gengið í samtökin hér: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd
Performers
-
ADHD samtökinNonprofit organization
-
Sigrun HaraldsdottirKennari, Eigandi og höfundur.
-
ADHD Vestfirðir
ADHD Vestfirðir er útibú ADHD samtakanna sem hafa aðalskrifstofu sína að Háaleitisbraut 13.