Stuðningshópur fyrir fólk sem á maka með heilabilun

Stuðningshópur fyrir fólk sem á maka með heilabilun

Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Directions

Wed 26.08.2026 13:30

Aðstandendur eru fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir en á það sameiginlegt að eiga ástvin á hjúkrunarheimili.

Hóparnir byggjast á hugmyndafræði jafningjastuðnings og er markmiðið með samverunni að hittast, spjalla og deila reynslunni. Stuðningur annarra í svipuðum aðstæðum getur bætt líðan og dregið úr streitu.

Öll velkomin og skráning óþörf.

UMSJÓN

Stuðningshópurinn er í umsjón Brynhildar Jónsdóttur sálfræðings. Eftir mastersnám starfaði Brynhildur á Minnismóttökunni á Landakoti við taugasálfræðilegar greiningar á fólki sem þangað leitaði vegna gruns um byrjandi heilabilun.

Brynhildur starfaði einnig sem klínískur sálfræðingur á Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni þar sem hún sinnti greiningum og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum.

Performers

  • Alzheimersamtökin
    Alzheimersamtökin

    Organization supporting individuals with dementia

  • Brynhildur Jónsdóttir

    Sálfræðingur, leiðir stuðningshópinn. Reynsla af Minnismóttökunni á Landakoti og Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni; sinnir greiningum og meðferð.