ADHD og tilfinningaþroski

ADHD og tilfinningaþroski

Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions

Tue 06.10.2026 20:00

ADHD og tilfinningaþroski

Fræðslufundur í streymi með Steinunni Önnu Sigurjónsdóttur, sálfræðingi og stofnanda litlu Kvíðameðferðarstöðvarinnar

Lýsing:

Margir fullorðnir með ADHD upplifa að erfiðleikar með tilfinningastjórn, skömm, nándarsambönd, hvatastjórn, sjálfsmynd og höfnunarnæmi hafi meiri áhrif á líf þeirra en athyglisbrestur eða ofvirkni.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um samspil ADHD, uppeldisaðstæðna, tengslamyndunar og taugakerfisins. Hvernig mótast sjálfsmynd barns sem elst upp við óstöðugleika, tilfinningalega vanstillingu, óreiðu, stjórn eða vanrækslu/einmanaleika? Hvað gerist þegar taugakerfi festist í fight, flight, freeze eða fawn viðbrögðum? Hvernig ævi bíður einstaklings sem heldur inn í fullorðinsár án þess að þekkja raunverulega hvíld, öryggi eða stöðugleika, hvorki í eigin taugakerfi, samskiptum né sjálfsmynd?

Farið verður yfir:

• tilfinningastjórn (emotional regulation)

• óörugga tengslamyndun og tengslasár

• varnarviðbrögðin fight/flight/freeze/fawn

• höfnunarnæmi og skömm

• yfirþyrmingu (overwhelm)

• hvernig áfallakeðjur og fjölskyldumynstur geta haldið áfram milli kynslóða

• hvernig hægt er að vinna í átt að meira öryggi og stöðugleika í taugakerfinu

Steinunn er klínískur sálfræðingur sem sérhæfði sig upphaflega í HAM en vinnur í dag með áfallamiðaðar nálganir, m.a. EMDR, partavinnu, tengslafræði og aðrar trauma-informed meðferðarnálganir. Hún talar bæði út frá faglegri reynslu og eigin lífsreynslu af því að reyna að skilja hvers vegna sum taugakerfi lifa í stöðugri viðbragðsstöðu.

Fyrirlesturinn er ætlaður fullorðnum með ADHD — og öllum þeim sem hafa upplifað að þau séu stöðugt að „reyna meira“ án þess að skilja af hverju lífið heldur áfram að vera svona erfitt.

Performers