Stuðningshópur fyrir aðstandendur fólks með heilabilun
Alzheimersamtökin, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Directions
Wed 02.09.2026 13:30
Aðstandendur eru fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir en á það sameiginlegt að eiga ástvin heima, í dagþjálfun eða á hjúkrunarheimili.
Hóparnir byggjast á hugmyndafræði jafningjastuðnings og er markmiðið með samverunni að hittast, spjalla og deila reynslunni. Stuðningur annarra í svipuðum aðstæðum getur bætt líðan og dregið úr streitu.
Engin skráning og öll velkomin.
UMSJÓN
Stuðningshópurinn er í umsjón Brynhildar Jónsdóttur sálfræðings. Eftir mastersnám starfaði Brynhildur á Minnismóttökunni á Landakoti við taugasálfræðilegar greiningar á fólki sem þangað leitaði vegna gruns um byrjandi heilabilun.
Brynhildur starfaði einnig sem klínískur sálfræðingur á Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni þar sem hún sinnti greiningum og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum.
Performers
-
Brynhildur Jónsdóttir
Sálfræðingur, leiðir stuðningshópinn. Reynsla af Minnismóttökunni á Landakoti og Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni; sinnir greiningum og meðferð.