Bókmenntaganga - saga og raddir kvenna

Bókmenntaganga - saga og raddir kvenna

Amtsbókasafnið á Akureyri, Brekkugata 17, 600 Akureyri Directions

Mon 13.07.2026 15:00

Amtsbókasafnið býður ykkur í bókmenntagönguna Saga og raddir kvenna mánudaginn 13. júlí kl. 15. Gangan hefst og endar við Amtsbókasafnið og er um klukkutími að lengd. Í göngunni verða lesin textabrot úr verkum eftir konur og eru þátttakendur hvattir til þess að taka þátt í upplestrinum.

Bókmenntagangan var þróuð af Borgarbókasafni í tilefni Kvennaárs 2025 og hana er hægt að framkvæma án tilits til staðsetningar. Að lokninni göngu verður bókmenntagöngupakki fáanlegur til útláns á Amtsbókasafninu með fjórum mismunandi gönguleiðum.

Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Hjólabogar eru við safnið auk þess sem frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá bókasafninu.

Performers