Hvítárvatn. Kajak og fjallganga

Hvítárvatn. Kajak og fjallganga

Sat 25.07.2026 10:00

Tjaldnótt í krúnudjásni Hvítárvatns, Karlsdrætti

25.-26. júlí

Sólkatla, Baldheiði og Hrefnubúðir. Örnefnin í kringum Karlsdrátt í Hvítárvatni eru nánast óþekkt og það er ótrúlegt til þess að hugsa að við séum rétt hjá Kili, Hvítárnesi og Bláfellshálsi en samt á svo framandi slóðum.

Við leggjum í hann með vistir og viðlegubúnað til tveggja daga frá bökkum Hvítárvatns og róum 8-10 kílómetra leið að höfðanum sem lokar af voginum. Þarna sláum við upp tjöldum og gistum eina töfranótt í þessari vin á hálendinu. Þau allra hörðustu baða sig að sjálfsögðu í Hvítárvatni!

Í morgunsárið daginn eftir, fyllum við á brúsa með tæru lindarvatni og göngum á Sólkötlu sem rís í ríflega 1000 metra hæð yfir sjávarmáli. Þaðan er stórkostlegt útsýni yfir Langjökul og jökulskerin Þursaborg og Fjallkirkju auk þess sem Hrútfellið, Hvítárvatnið sjálft og sögufrægt umhverfi Kjalvegar blasir við frá afar sjaldséðu sjónarhorni. Gangan er um 10 km fram og til baka. Að göngu lokinni, seinnipart sunnudags tökum við saman tjaldbúðir og róum til baka sömu leið og við komum.

Nánari upplýsingar og skráning: https://utihreyfingin.is/product/hvitarvatn-kajak-og-fjallganga/

Performers

  • Útihreyfingin
    Útihreyfingin

    Útihreyfingin er hreyfing um hreyfingu. Alls konar hreyfingu. Í stærsta æfingasal landsins. Úti.